Karfan þín er tóm

Sauna fyrir allt að fjóra. Í þessari sauna er setið andspænis hvort öðru, sem bíður upp á gott spjall augliti til auglitis þegar farið er saman í sauna.Ofninn er felldur inn í bakvegginn fyrir örugga og plásssparandi hönnun sem heldur setsvæðinu opnu.
Sauna fyrir allt að fjóra. Í þessari sauna er setið andspænis hvort öðru, sem bíður upp á gott spjall augliti til auglitis þegar farið er saman í sauna.Ofninn er felldur inn í bakvegginn fyrir örugga og plásssparandi hönnun sem heldur setsvæðinu opnu.
Viva sameinar tímalaust útlit og endingargóð efni. 40 mm Thermowood veggir veita styrk, einangrun og náttúrulega hlýju í útliti. Lóðréttir listar á framhlið skapa fallegt mynstur og léttleika sem grípur augað – hvort sem sánan stendur á palli, mitt í grónum garði eða út í skógi.
Að innan – hannað fyrir fullkomna slökun
Að innan snýst allt um þægindi og endingu. Bekkir, bakstoðir, loft og veggir eru úr 100% Thermowood – valið fyrir gæði og mikið og gott hitaþol.
Í boði er að fá sérsmíðan skrautvegg í bak sánunnar, það má segja að skrautveggurinn setji puntinn yfir i-ið.
Einnig er í boði dimmanleg LED-lýsing sem skapar notalega stemningu.
Hver gerð er hönnuð fyrir einfalda samsetningu og áratuga notkun utandyra. Þetta er fjárfesting í lífsgæðum.
Verð miðast við ósamsetta sánu án aukahluta.
Mjög góðar samsetningarleiðbeiningar fylgja.
Samsetning í boði.
https://leilsaunas.com/sauna/viva-180/
ThermoWood® hitameðhöndlaður efniviður: 40 mm bjálki í veggjum og lofti til að standast krefjandi veðurfar
Bronslitað öryggisgler í hurð með svörtum lömum og gæða handfangi
Hitameðhöndlaður ölur í bekkjum og bakstuðningi fyrir þægindi og fegurð
Gólf byggt úr 40mm hitameðhöndluðum bjálka með hentugri loftun
Þak er frágengið með slitsterkum EPDM þakdúk
Val um LED ljósborða undir/ofan í bakstuðning og útskorna sex-strendinga sem skrautvegg.
Hitari getur verið rafknúinn eða viðarkynntur
Utananmál (mm): B 1815 × D 1800 × H 2340
Innanmál (mm): B 1742 × D 1580 × H 2100
Þyngd: 500 kg.