Karfan þín er tóm

Viva 120 – Minnsta gerðin okkar – fyrir einn til tvo. Tekur lítið pláss og hentar vel þar sem lítið pláss er í garði eða á verönd.
Viva sameinar tímalaust útlit og endingargóð efni. 40 mm Thermowood veggir veita styrk, einangrun og náttúrulega hlýju í útliti. Lóðréttir listar á framhlið skapa fallegt mynstur og léttleika sem grípur augað – hvort sem sánan stendur á palli, mitt í grónum garði eða út í skógi.
Að innan – hannað fyrir fullkomna slökun
Að innan snýst allt um þægindi og endingu. Bekkir, bakstoðir, loft og veggir eru úr 100% Thermowood – valið fyrir gæði og mikið og gott hitaþol. Í boði er að fá sérsmíðan skrautvegg í bak sánunnar, það má segja að skrautveggurinn setji puntinn yfir i-ið. Einnig er í boði dimmanleg LED-lýsing sem skapar notalega stemningu.
Hver gerð er hönnuð fyrir einfalda samsetningu og áratuga notkun utandyra. Þetta er fjárfesting í lífsgæðum.
Verð miðast við ósamsetta sánu án aukahluta.
Mjög góðar samsetningarleiðbeiningar fylgja.
Samsetning í boði.
https://leilsaunas.com/sauna/viva-120/
Utanmál (mm):B 1225 × D 1360 × H 2340
Innanmál (mm): B 1140 × D 1140 × H 2100
Þyngd:400 kg.