Patio S er listilega vel hönnuð með tilliti til plássnýtingar og þæginda og hentar vel fyrir allt að 4 í einu.
Patio S er í málunum 2,39m x 2,39m x 2,41 og nýtur sín vel á palli eða í garðinum.
Innanmál eru 2,0m x 2,0m x 2,2m og rúmmál er 8.8m3
Hún er byggð úr 40mm Thermowood bjálkum og er með tvöfoldu gleri í gluggum og hertu gleri í hurð að framanverðu. (einnig í boði að fá læsanlega hurð með viðarumgjörð) 30mm PIR sauna einangrun er í þakinu og þakdúkur að utanverðu. Svartir karmar og málmflasningar í þakköntum. Bekkir eru úr hágæða ölri (alder).
Saunan er hönnuð og smíðuð af Saunasell í Eistlandi og er afhent ósamsett með góðum samsetningarleiðbeiningum með það í huga að geta reist hana á staðnum.
Þyngd: 950kg
Bakstuðningur og tvöfalt gler er innifalið í grunnverðinu. Val er um hversu mikil lýsing er sett í sánuna, hægt er að fá LED ljósasett með val um fjölda ljósborða.
Einnig er í boði að fá „speglaða“ útgáfu, þá er inngangur á hægri hlið.
Bjóðum upp á samsetningu á sánum sé þess óskað.







