Karfan þín er tóm

NormX kynnir nýja kynslóð WiFi pottastýringa sem býður upp á meiri sveigjanleika, fleiri öryggiseiginleika og einfaldari notkun en áður. Einn kosturinn er að snertiskjárinn frá Shelly þarf ekki að vera staðsettur við pottastýringuna. Svo lengi sem skjárinn og stýringin eru tengd sama WiFi neti geturðu haft skjáinn þar sem þér hentar best – til dæmis inni í húsinu, í bílskúrnum eða sumarbústaðnum og stýringin getur verið annarstaðar. Einnig er hægt að seinka lokun á rafmagnskúluloka um allt að 4 mín.
Íslenskt viðmót sem einfalt er að breyta yfir á ensku.
Kemur með 1″ blöndunarloka.
Rafmagnskúloki á tæmingu/fyllingu seldur sér.
NormX kynnir nýja kynslóð WiFi pottastýringa sem býður upp á meiri sveigjanleika, fleiri öryggiseiginleika og einfaldari notkun en áður.
Einn stærsti kosturinn er að snertiskjárinn frá Shelly þarf ekki að vera staðsettur við pottastýringuna. Svo lengi sem skjárinn og stýringin eru tengd sama WiFi neti geturðu haft skjáinn þar sem þér hentar best – til dæmis inni í húsinu eða sumarbústaðnum og stýringin getur verið annarstaðar.
Allt viðmót stýringarinnar er á íslensku, sem gerir notkunina einfalda og þægilega. Fyrir þá sem kjósa annað tungumál er jafnframt hægt að skipta yfir á ensku með einum smelli.
Það hefur aldrei verið auðveldara að tengja pottastýringu við appið. Þú þarft aðeins að skanna QR-kóða á stýringunni og appið er komið í símann. Á örfáum mínútum ertu komin(n) í samband og getur byrjað að stjórna pottinum beint úr símanum.
Hægt er að stilla seinkun á lokun botnlokans um allt að 4 mínútur. Þetta er sérstaklega hentugt í frosti þar sem vatnið heldur áfram að renna í gegnum botnlokann og getur þannig hjálpað til við að afþýða hann áður en hann lokast.
Við mælum þó ávallt með að botnlokinn sé frostvarinn, til dæmis með hitaþræði, til að lágmarka hættu á frostskemmdum.
Nýr öryggiseiginleiki gerir þér kleift að stilla hámarks rennslistíma. Ef potturinn nær ekki tilskildum hita, til dæmis vegna bilunar eða annarra aðstæðna, stöðvast vatnsrennslið sjálfkrafa eftir þann tíma sem þú velur, til dæmis 40 mínútur. Þannig kemur stýringin í veg fyrir að vatn renni endalaust.
Allar pottastýringar frá NormX eru afhentar með 1″ blöndunarloka sem tryggir mikið vatnsflæði.
Við eðlilegar aðstæður fyllist til dæmis Grettislaug á um 25 mínútum, sem sparar bæði tíma og eykur þægindi.
NormX WiFi pottastýringin er þróuð með íslenskt veðurfar og íslenskar aðstæður í huga. Hún sameinar öryggi, einfaldleika og snjalla eiginleika sem gera stjórnun heita pottsins bæði þægilegri og áreiðanlegri.
NormX – hönnuð fyrir íslenskar aðstæður. Snjallari, öruggari og einfaldari stjórnun á heita pottinum.